Allt okkar sterkasta sundfólk mætt til að taka þátt í ÍM50 2023
Íslands- og unglingameistarmótið í sundi í 50m laug hefst á morgun laugardag en keppni líkur á mánudagskvöld.
Anton Sveinn og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir koma til landsins ásamt fleira sundfólki sem er við nám í Bandaríkjunum.
Það verður því allt okkar sterkasta fólk sem tekur þátt í ÍM50 að þessu sinni fyrir utan Snæfríði Sól sem tekur þátt í danska meistaramótinu á sama tíma.
Þetta er síðasta mótið fyrir sundfólkið okkar til að ná lágmörkum inn á Alþjóðleg sundmót sumarsins og einnig verður Smáþjóðaleika liðið valið að loknu móti.
þannig að þetta verður skemmtilegt og spennandi mót😊
Veitt verða verðlaun í unglingaflokkum og í kvenna og karla flokkum.
Á lokadegi mótsins, mánudag verða afhentir bikarar fyrir bestu afrekin.
- Sigurðarbikarinn fyrir besta afrek í bringusundi á ÍM50 2023
- Pétursbikarinn fyrir besta afrek karla skv stigatöflu FINA frá lokum síðasta ÍM50 til loka ÍM50 2023
- Kolbrúnarbikarinn fyrir besta afrek kvenna skv stigatöflu FINA frá lokum síðasta ÍM50 til loka ÍM50 2023
- Ásgeirsbikarinn fyrir besta afrek skv stigatöflu FINA unnið á ÍM50 2023
Hér er dagskrá mótsins
Hér er keppendalistinn.
Undanrásir hefjast kl 09:30 á alla morgna og úrslitin hefjast kl 17:00.
Það verða spennandi sund um helgina og hvetjum við alla til að mæta í Laugardalslaug og sjá allt okkar sterkasta sundfólk synda.