Glæsilegur árangur á degi tvö á ÍM50
Birnir Freyr Hálfdánarson, SH synti í dag 200m fjórsund á glæsilegu nýju íslandsmeti, hann synti á tímanum 2:04, 05 og bætti met Anton Sveins McKee sem hann setti árið 2015, 2:04,53. Frábær árangur hjá Birni en þetta er jafnframt nýtt unglingamet í greininni.
Strákarnir í 50m bringusundi, þeir Einar úr ÍA, Snorri og Daði úr SH héldu áfram að bæta tíma sína síðan í morgun, en nú snérist dæmið við og Snorri Dagur setti unglingamet í þeirri grein, 28,53 og sló met Einars Margeirs síðan í morgun en þá synti hann á 28,66
Hólmar Grétarsson, SH sigraði með yfirburðum í 1500m skriðsundi á glæsilegu nýju aldursflokkameti, 16:25,59 og tryggði sér um leið lágmark á EYOF í sumar. Gamla metið átti hann sjálfur síðan 23. mars á Ásvallamótinu.
Í 200m skriðsundi kvenna sigraði Vala Dís Cicero á tímanum 2:05,17 og tryggði sér EMU og EYOF lágmörk í leiðinni. Í sama sundi syntu þær Hulda Björg Magnúsdóttir úr Ægi og Ásdís Rán Steindórsdóttir, Breiðabliki, undir lágmarki fyrir NÆM, Norðurlandameistaramóti æskunnar sem fram fer í sumar. Margrét Anna Lapas Breiðabliki tryggði sér einnig NÆM lágmark í 100m bringusundi í morgun.
Ylfa Lind Kristmannsdóttir synti gríðarlega vel 100m baksund, hún sigraði í greininni á timanum 1:04,64 og um leið tryggði hún sér lágmark á EMU, EYOF og NÆM en öll þessi mót fara fram í sumar.
Freyja Birkisdóttir synti undir EMU lágmarki þegar hún sigraði í 800m skriðsundi á tímanum 9:16,65.
Í 4x 100m skriðsundi karla sigraði sveit SH 2 og setti um leið unglingamet á tímanum 3:35,21. Sveitin var skipuð þeim Veigari Hrafni Sigþórssyni,Bergi Fáfni Bjarnasyni ,Birni Yngva Guðmundssyni og Birnir Freyr Hálfdánarsyni.
Sveit SH 3 settu aldursflokkamet í sömu grein, þeir syntu á tímanum 3:54.97 og var sveitin skipuð þeim Magnúsi Víði Jónssyni, Karli Björnsyni, Hólmari Grétarssyni og Halldóri Inga Hafþórssyni. En þess má geta að Sundfélag Hafnarfjarðar átti þrjár sveitir í þessari grein.
Frábær dagur í Laugardalslaug í dag og virkilega gaman að sjá allt unga sundfólkið standa sig svona vel.
Lokadagur ÍM50 er svo á morgun mánudag og þar má búast við mikilli keppni í mörgum greinum eins og síðustu tvo daga.
Íslandsmeistarar dagsins
400m fjórsund kvenna Eva Margrét Falsdóttir ÍRB
1500m skriðsund karla Hólmar Grétarsson SH
50m baksund karla Brynjólfur Óli Karlsson Breiðabliki
200m skriðsund kvenna Vala Dís Cicero SH
200m fjórsund karla Birnir Freyr Hálfdánarson SH
100m bringusund kvenna Birgitta Ingólfsdóttir SH
50m bringusund karla Snorri Dagur Einarsson SH
50m flugsund kvenna Jóhanna Elín Guðmundsdóttir SH
100m skriðsund karla Simon Elías Statkevicius SH
100m baksund kvenna Ylfa Lind Kristmannsdóttir Ármann
200m flugsund karla Aron Þór Jónsson Breiðabliki
800m skriðsund kvenna Freyja Birkisdóttir Breiðabliki
4x 100m skriðsund karla Sveit SH 2
4x 100m skriðsund kvenna Sveit SH 1
Unglingameistarar dagsins
400m fjórsund kvenna Sunneva Bergman Ásbjörnsdóttir ÍRB
1500m skriðsund karla Hólmar Grétarsson SH
50m baksund karla Guðmundur Leó Rafnsson ÍRB
200m skriðsund kvenna Vala Dís Cicero SH
200m fjórsund karla Birnir Freyr Hálfdánarson SH
100m bringusund kvenna Margrét Anna Lapas Breiðabliki
50m bringusund karla Einar Margeir Ágústsson ÍA
50m flugsund kvenna Vala Dís Cicero SH
100m skriðsund karla Veigar Hrafn Sigþórsson SH
100m baksund kvenna Ylfa Lind Kristmannsdóttir Ármann
200m flugsund karla Bartosz Henke SH
800m skriðsund kvenna Freyja Birkisdóttir Breiðabliki