Sunddeild Fjölnis leitar að metnaðarfullum þjálfara
Sunddeild Fjölnis leitar að metnaðarfullum þjálfara. Mikið uppbyggingarstarf er hjá deildinni þar sem megin markmið eru að fjölga iðkendum og bjóða upp á fyrsta flokks æfingaumhverfi fyrir það unga og efnilega sundfólk sem æfir hjá sunddeild Fjölnis.
Um er að ræða 30-50% starf, með möguleika á hærra starfshlutfalli.
Starfslýsing þjálfara
Helstu verkefni þjálfara eru að:
• þjálfa hópa á aldursbilinu 7-13 ára
• aðstoða yfirþjálfara í þeim verkefnum sem hann setur fyrir, leysa af í sundskóla og vera á sundmótum sé þess óskað
• taka virkan þátt í uppbyggingu deildarinnar, afla sér faglegrar þekkingar og styðja sundfólkið í að ná framförum í sinni íþrótt
Hæfniskröfur:
• góður íþróttabakgrunnur
• góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
• metnaður og frumkvæði
• góð íslenskukunnátta
• hreint sakavottorð
• lágmarksaldur 20 ára
Sunddeild Fjölnis leggur mikinn metnað í endurmenntun þjálfara. Því er í boði að sækja
þjálfaranámskeið hjá Sundsambandi Íslands. Öll reynsla eða menntun í sundþjálfun er mikill kostur en ekki krafa.
Nánari upplýsingar veitir stjórn deildarinnar á sund@fjolnir.is og formaður deildarinnar Aníka Lind Björnsdóttir s. 867-4371.