Smáþjóðaleikarnir verða settir formlega í kvöld - Keppni hjá sundfólki hefst í fyrramálið.
Smáþjóðaleikarnir verða settir formlega í kvöld hér á Möltu og fær sundmaðurinn Anton Sveinn McKee þann heiður að vera fánaberi fyrir Íslands hönd. Sundfólkið kom til Möltu í gær og strax í morgun var tekin æfing í keppnislauginni þar sem allir voru hressir og kátir, en hér er sól og blíða og keppt í útilaug.
Mótið hefst í fyrramálið kl 10:00 (08:00 á íslenskum tíma) með undanrásum og fyrsta grein er 100m skriðsund kvenna þar sem þær Jóhanna Elín og Snæfríður Sól synda báðar.
Það verður gaman að fylgjast með sundfólkinu okkar næstu daga, en þau eru hingað komin til að gera sitt allra besta. Vonandi fáum við að sjá sem flesta í úrslita sundum og sem flesta á verðlaunapalli, en eru íslenskir keppendur í sundi eru alls 21.
Í undanrásum á morgun verða þessir í eldlínunni.
100m skriðsund kvenna Jóhanna Elín og Snæfríður Sól
100m skriðsund karla: Símon Elías Stakevicius og Ýmir Sölvason
200m fjórsund kvenna Eva Margrét Falsdóttir og Birgitta Ingólfsdóttir
200m fjórsund karla Birnir Freyr Hálfdánarson og Veigar Hrafn Sigþórsson.
Bein úrslit eru í öðrum greinum á morgun, en það eru 200m flugsund karla og kvenna, 200m baksund karla og kvenna. Úrslitin fara fram kl 17:00 ( 15:00) á morgun.
Keppendur og greinar sem þau synda á leikinum:
Anton Sveinn McKee- 200m og 100m bringa og 400m fjór
Aron Þór Jónsson - 200m flug og 400m fjór
Bergur Fáfnir Bjarnason - 200m, 100m og 50m bak
Birgitta Ingólfsdóttir - 100m og 50m bringa og 200m fjór
Birnir Freyr Hálfdánarson - 100m og 50m flug og 200m fjór
Daði Björnsson - 100m og 50 m bringa
Eva Margrét Falsdóttir - 200m og 100m bringa, 400m og 200m fjór
Freyja Birkisdóttir - 1500m, 800m og 400m skrið
Guðmundur Leo Rafnsson - 200m 100m og 50m bak
Hólmar Grétarsson - 1500m, 800m og 400m skrið
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir - 100m og 50m skrið og 50m flug
Katja Lilja Andriysdóttir - 1500m og 800m skrið, 200m og 50m bringa
Kristín Helga Hákonardóttir -200m og 100m flug og 50m skrið
Símon Elías Statkevicius - 100m og 50m skrið, 100m og 50m flug
Snæfríður Sól Jórunnardóttir - 400m, 200m og 100m skrið og 50 flug
Snorri Dagur Einarsson - 200m og 50m bringa
Steingerður Hauksdóttir - 100m og 50m bak
Hér er hægt að fylgjast með úrslitum: