Flottur dagur á fyrsta degi á EMU
Snorri Dagur Einarsson og Einar Margeir Ágústsson syntu nú seinnipartinn 50m bringusund í 16 manna úrslitum á Evrópumeistaramóti unglinga í Belgrad. Einar Margeir synti á tímanum 29,05 og varð í 15. sæti. Snorri Dagur varð í áttunda sæti ásamt sundmanni frá Bretlandi og syntu þeir umsund um áttunda sætið í 8 manna úrslitum sem fram fara á morgun. Því miður þá fór tímatökubúnaðurinn ekki í gang í sundinu og þurftu þeir því að synda aftur.
Þar tapaði Snorri einvíginu því miður, en hefði tímatökubúnaðurinn virkað þá hefði Snorri tryggt sér áttunda sætið inn í úrslitin á morgun, en hann var sjónarmun á undan þeim breska í fyrra skiptið. Snorri synti á tímanum 28,53.
Virkilega góður árangur hjá þeim Snorra og Einari í dag.
Mótið heldur áfram í fyrramálið og þá fáum við að sjá Birni Frey Hálfdánarson synda 200m fjórsund.
Úrslit er hér : https://live.swimrankings.net/38481/
Lifandi streymi er hér : https://www.youtube.com/@SwimStreamChannel/videos