Opna Íslandsmótið í Víðavatnssundi 2023
Fimmtudaginn 20. júlí nk. stendur SJÓR ásamt Sundsambandi Íslands fyrir Opna Íslandsmótinu í víðavatnssundi.
Keppnin fer fram í Nauthólsvík og hefst kl. 17.00.
Boðið verður upp á þrjár keppnisvegalengdir:
- 1 km víðavatnssund hentar sundlaugakeppnisfólki og byrjendum.
- 3 km víðavatnssund hentar reyndu sjósunds-, þríþrautar og keppnisfólki.
- 5 km víðavatnssund hentar þeim allra reyndustu.
Keppendur geta valið á milli neofren galla og venjulegra sundfata samkvæmt reglum FINA.
Lágmarksaldur er 16 ár og aldurskipting eftirfarandi: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára og 65 ára og eldri.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki.
Skráning fer fram í gegnum Sportabler.
Verð:
5 km, 12.000 kr - mæting kl 16:30, ræst kl 17:00
3 km, 9.000 kr - mæting kl 17:00, ræst kl 17:30
1 km, 6.000 kr - mæting kl 17:30, ræst kl 18:00
Allir iðkendur sjósunds sem og aðrir sundmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt, hvort sem þeir eru byrjendur eða keppnisfólk.
Dómgæsla verður í höndum Sundsambands Íslands og Tímataka ehf sér um tímatökuna.
Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð.
Bátar og kajakar munu fylgja sundfólkinu.
Mikilvægt er að keppendur mæti tímanlega.
Mótið verður fullt af spennu og skemmtun eins og undanfarin ár enda keppendur að leggja mikið á sig líkamlega.
Frekari upplýsingar verða á facebook viðburðinum: https://www.facebook.com/events/317934440667006
Kær kveðja,
Mótshaldarar