EYOF 2023 hefst á mánudaginn
Keppni á Evrópuleikum Æskunnar (EYOF) hefst á mánudaginn. Fimm sundmenn héldu af stað í morgun til Maribor í Sloveníu, en þar fara leikarnir fram dagana 23. – 29 júlí nk.
Sundfólkið sem tekur þátt í EYOF eru þau:
Hólmar Grétarsson Sundfélag Hafnarfjarðar
400m fjórsund, 400m skriðsund, 1500m skriðsund
Magnús Víðir Jónsson Sundfélag Hafnarfjarðar
100m skriðsund, 200m skriðsund, 400m skriðsund
Vala Dís Cicero Sundfélag Hafnarfjarðar
50m skriðsund- 100m skriðsund – 200m skriðsund
Sólveig Freyja Hákonardóttir Sunddeild Breiðabliks –
100m skriðsund- 400m skriðsund- 800m skriðsund
Ylfa Lind Kristmannsdóttir Sunddeild Ármanns
50m skriðsund- 100m baksund- 200m baksund.
Með þeim í för er Hrafnhildur Lúthersdóttir þjálfari.
Hægt er að fylgjast með úrslitum hér : https://eyof-maribor.com/urnik-tekmovanj/
Það verður virkilega gaman að fylgjast með unga sundfólkinu okkar á EYOF en við eigum sundkonur strax í fyrstu grein mótsins, 100m skriðsundi kvenna á mánudaginn kl 09:30 eða kl 07:30 á íslenskum tíma. Þá synda þær Sólveig Freyja og Vala Dís.