Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði, helgina, 10.-12. nóvember 2023.
Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði, helgina, 10.-12. nóvember 2023.
Undanrásir hefjast kl 09:30 alla morgna og úrslitin hefjast kl 17:00
Mótið er haldið í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra og mun Sundfélag Hafnarfjarðar sjá um framkvæmd mótsins ásamt SSÍ.
Alls eru 183 keppendur skráðir á mótið.
Krýndir verða unglingameistarar í morgunhlutum en unglingaflokkur 18 ára og yngri í bæði karla- og- kvennaflokki
Íslandmeistarar verða svo krýndir í úrslitahlutum sem hefjast kl 17:00.
Anton Sveinn Mckee er mættur til landsins til að taka þátt í mótinu og Jóhanna Elín er einnig á leið til landsins frá Bandaríkjunum. Símon Elías Statkevicius kemur frá Svíþjóð þar sem hann hefur æft undanfarna mánuði, en Snæfríður Sól Jórunnardóttir tekur ekki þátt í mótinu að þessu sinni en hún mun hins vegar taka þátt í Bikarkeppni í Danmörku 18. – 19 nóvember.
Anton Sveinn undirbýr sig nú fyrir Evrópumeistaramótið í 25m laug sem fram fer í Búkarest 5. – 10 desember n.k, en nú þegar hafa þau Snæfríður Sól , Anton Sveinn , Snorri Dagur og Einar Margeir tryggt sér lágmark á það mót en þeir tveir síðast nefndu syntu sig inn í undanúrslit á Evrópumeistaramóti unglinga í sumar.
Við eigum von á hörku keppni um helgina í öllum greinum en þetta er síðasta tækifæri sundfólksins að ná lágmörkum á EM25 og á Norðurlandameistaramótið sem fram fer í Tartu í Eistlandi 8.- 10 desember.
Það verður mikið fjör og skemmtileg keppni í Ásvallalaug um helgina.
Hægt er að fylgjast með úrslitum hér: https://live.swimrankings.net/39165/#
Einnig verður streymi alla helgina hér : https://www.youtube.com/sundsambandid