Verklegi hluti þjálfaranámskeiðs SSÍ 1 fór fram um helgina
05.02.2024
Um helgina fór fram verklegi hluti þjálfraranámskeið SSÍ í nýju kerfi og gekk helgin ljómandi vel.
Þjálfarastig SSÍ-1[1] er byggt á þrepaskiptu menntunarkerfi World Aquatic þar sem markmiðið er að auka hæfni sundþjálfara, íþróttinni til framdráttar. Þjálfarastig SSÍ-1 er alþjóðlega viðurkennt námskeið í flestum löndum Evrópu.
Námskeiðið var að mestu kennt í fjarnámi fyrir utan verklega hlutann sem fram fór um helgina.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að stjórna æfingum hjá byrjendum í sundi með aðstoð yfirþjálfara félagsins út frá „Long Term Development Plan“ SSÍ í Fasa 3: „Learn to Train“.
Það eru þeir Dr. Ingi Þór Einarsson og Ragnar Guðmundsson sem halda utan um þetta námskeið hjá SSÍ.