Enn og aftur frábær dagur tvö á ÍM50.
Enn og aftur frábær dagur tvö á ÍM50.
Tvö unglingamet féllu í úrslitahlutanum í kvöld. Guðmundur Leó Rafnsson bætti unglingamet Kristins Þórarinssonar þegar hann synti á tímanum 26,80 en gamla metið var 26,87 og um leið tryggði hann sér lágmark í þessari grein á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fer í sumar. Guðmundur Leo gerði sér einnig lítið fyrir og sigraði í 100m skriðsundi í dag.
Kvenna sveit Breiðabliks í 4x100m skriðsundi setti unglingamet þegar þær syntu á tímanum 3:57,29 og bættu metið um tæpar 6 sekúndur. Sveitina skipuðu þær Nadja Djurovic, Sólveig Freyja Hákonardóttir, Ásdís Steindórsdóttir og Freyja Birkisdóttir.
Þau sem náðu inn á Evrópumeistaramótið, EM50 í sumar:
- Snæfríður Sól Jórunnardóttir 200m skriðsund 1:58,69
- Snorri Dagur Einarsson 50m bringusund 28,26
- Einar Margeir Ágústsson 50m bringusund 28,48
Þau sem náðu lágmörkum í dag á Evrópumeistaramót unglinga sem fram fer í sumar.
- Guðmundur Leó Rafnsson úr ÍRB í 50metra baksundi á 26,80
- Vala Dís Cicero úr SH 200m skriðsund 2:03,51
- Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH 200m fjórsund 2:05.74
- Freyja Birkisdóttir Breiðablik 800m skriðsund 9:12,10
Þau sem náðu inn á Norðurlandameistaramót Æskunnar í dag:
- Margrét Anna Lapas 100m bringusund 1:14,60
- Magnús Víðir Jónsson úr SH í 100m skriðsundi 54,19
- Denas Kazulis úr ÍRB 100m skriðsund 54,33
- Ylfa Lind Kristmannsdóttir 100m baksund 1:05,05
- Ástrós Lovísa Hauksdóttir 100m baksund 1:07,33
- Hólmar Grétarsson úr SH í 1500m skriðsundi 16:40.85 og 200m flugsund 2:11,22
- Sólveig Freyja Hákonardóttir Breiðablik 800m skriðsund 9:35,29
- Ásdís Steindórsdóttir Breiðablik 800m skriðsund 9:13,22
Íslandsmeistarar dagsins:
Eva Margrét Falsdóttir, ÍRB sigraði í 400 metra fjórsundi kvenna
Hólmar Grétarsson úr SH sigraði í 1500m skriðsundi karla
Guðmundur Leó Rafnsson sigraði í 50m baksundi karla
Snæfríður Sól Jórunnardóttir sigraði í 200m skriðsundi kvenna
Birnir Freyr Hálfdánarson sigraði í 200m fjórsundi karla
Birgitta Ingólfsdóttir sigraði í 100m bringusundi kvenna
Snorri Dagur Einarsson sigraði í 50m bringusundi karla
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir sigraði í 50m flugsundi kvenna
Guðmundur Leó Rafnsson sigraði í 100m skriðsundi karla
Ylfa Lind Kristmansdóttir sigraði í 100m baksundi kvenna
Hólmar Grétarsson úr SH sigraði í 200m flugsundi karla
Freyja Birkisdóttir sigraði í 800m skriðsundi kvenna
Karlasveit ÍRB sigraði í 4x100m skriðsundi karla
Kvenna sveit Breiðabliks sigraði í 4x100m skriðsundi kvenna
Síðasti dagur mótsins er á morgun sunnudag og í lok úrslitahlutans á morgun verða veittar viðurkenningar og mun forseti Íslands Hr Guðni Th Jóhannesson veita Ásgeirsbikarinn en hann er farandgripur sem er veittur árlega fyrir besta afrek í sundi, samkvæmt stigatöflu WORLD AQUATICS, unnið á Íslandsmeistaramóti í 50 metra laug sem haldið er á vegum SSÍ.
Þá mun Kolbrúnarbikarinn verða afhentur en hann farandgripur sem er veittur árlega í kvennaflokki fyrir besta afrek í sundi, samkvæmt stigatöflu WORLD AQUATICS, unnið frá lokum Íslandsmeistaramóts í 50 metra laug, sem haldið er á vegum SSÍ, til loka næsta Íslandsmeistarmóts í 50 metra laug.
Einnig verður Pétursbikarinn veittur en hann er farandgripur sem er veittur árlega í karlaflokki fyrir besta afrek í sundi, samkvæmt stigatöflu WORLD AQUATICS, unnið frá lokum Íslandsmeistaramóts í 50 metra laug, sem haldið er á vegum SSÍ, til loka næsta Íslandsmeistarmóts í 50 metra laug.
Að lokum verður Sigurðarbikarinn veittur en hann er farandgripur sem er veittur árlega fyrir besta afrek í bringusundi, unnið á Íslandsmeistaramóti í 50 metra laug sem haldið er á vegum