Beint á efnisyfirlit síðunnar

AP Race í London 24. - 28 maí

28.05.2024

Sundsambandið sendi 21 sundmann til London  til að taka þátt í AP Race dagana 24. – 28 maí.

Mótið var mjög sterkt og tók mikið af besta sundfólki heims þátt í mótinu, sundfólkið okkar fékk mikla reynslu við það að taka þátt í þessu móti. Margir bættu sig og syntu til úrslita á kvöldin. Freyja Birkisdóttir setti unglingamet í 800m skriðsund á tímanum 9:08,33, en hún átti sjálf gamla metið 9:08,86 sett fyrir tveimur árum. Snæfríður Sól tryggði sér bronsverðlaun í 100m skriðsundi á mótinu.

Flottur árangur hjá okkar fólki!

Til baka