Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frábær byrjun á EM50 í morgun

17.06.2024

Evrópumeistaramótið í sundi í 50m laug hófst í Belgrad í morgun og áttum við 4 keppendur í þessum fyrsta morgunhluta.

 

Þeir Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson syntu 100m bringusund í morgun og syntu þeir gríðarlega vel, þeir bættu báðir sína tíma.  Snorri Dagur synti á tímanum 1:01,66 og var ótrúlega nálægt því að komast í undanúrslit, en síðasti tími inn í undanúrslitin var 1:01,36.  Snorri átti áður 1:02,23.  Einar Margeir bætti einnig sinn besta tíma í sundinu þegar hann synti á 1:02,39 og varð hann í 31 sæti af 50 keppendum. Gamli tími Einars var1:03,77  Frábært sund hjá strákunum í morgun.

 

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti 100m skriðsund nú í morgun þegar hún synti á tímanum 57,13 hún varð í 29 sæti af 42 keppendum . Jóhanna á best 56,78.

Fínn árangur hjá Jóhönnu en hún á eftir að synda 50m skriðsund og 50m flugsund á mótinu.

 

Símon Elías Statkevicius synti 50m flugsund á tímanum 24,64 sem er alveg við hans besta tíma en hann á best 24,45, Símon endaði í 43 sæti af 59 keppendum

 

Mjög góð byrjun hjá okkar fólki á EM50 í morgun.

 

Á morgun mun Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synda, 50m flugsund, Símon Elías syndir 100m skriðsund og Birgitta Ingólfsdóttir syndir 100m bringusund.

 

Til baka