Beint á efnisyfirlit síðunnar

Evrópumeistaramótið í sundi hélt áfram í morgun í Belgrad.

18.06.2024

Evrópumeistaramótið í sundi hélt áfram í morgun í Belgrad.

Símon Elías Statkevicius synti mjög gott 100m skriðsund í morgun þegar hann bætti tíma sinn í greininni, hann synti á tímanum 51,51. Gamli tíminn hans 51,67 var síðan á Smáþjóðaleikunum á Möltu í fyrra. Símon syntir næst á föstudaginn þegar hann syndir 50m skriðsund.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti 50m flugsund í morgun þegar hún synti á tímanum 27,99 og varð í 25 sæti. Jóhanna var alveg við sinn besta tíma sem er 27,69.  Jóhanna Elín syndir næst á föstudaginn en þá syndir hún 50m skriðsund.

Birgitta Ingólfsdóttir synti 100m bringusund á tímanum 1:15,34 sem er töluvert frá hennar besta tíma.  En hún varð því miður fyrir því óhappi að skera sig mjög illa undir fæti í upphitun og náði því miður ekki að undirbúa sig sem skyldi.  Birgitta sýndi af sér mikla hörku þrátt fyrir þetta óhapp og kláraði sitt fyrsta sund á stórmóti, en hún mun vonandi synda 50m bringusund á laugardaginn.

Til baka