Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton Sveinn með besta tímann inn í úrslitin á EM50

19.06.2024

Anton Sveinn gerði sér lítið fyrir og synti sig örugglega inn í úrslit í 200m bringusundi á EM50 í Belgrad þegar hann synti á tímanum 2:10,14, en hann er með besta tímann inn í úrslitin sem fram fara á morgun, kl 17:31.

Það má svo sannarlega segja að það verði mikil sundhátíð á morgun þegar Ísland á tvo í úrslitum á Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í Belgrad.

Við hvetjum alla til að senda góða strauma út í sólina og hitann í Belgrad.

Til baka