Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frábær morgun á EM50 í Belgrad

19.06.2024

Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti gríðarlega vel 200m skriðsund í morgun þegar hún synti á tímanum 1:58,73 og er fjórða inn í 16 manna úrslit í dag.

Virkilega vel útfært sund hjá Snæfríði, en besti tími hennar er 1;57,98. Það verður mjög gaman að fylgjast með Snæfríði í dag en hún mun synda kl 16:30.

Anton Sveinn McKee synti 200m bringusund á tímanum 2:11,96 og er hann með besta tímann inn í 16 manna úrslitin í kvöld. Mjög flott og yfirvegað sund hjá Antoni.

Frábær morgun í sundlauginni í Belgrad á EM50.

Undanúrslitin hefjast kl 16.30 og verða þau sýnd beint á Rúv2.

Myndir með frétt

Til baka