Ellefu Íslandsmet litu dagsins ljós, níu unglingamet og eitt aldursflokkamet.
Þá er Íslands- og unglingameistarmótinu í sundi í 25m laug lokið með frábærum árangri sundfólksins. Ellefu Íslandsmet litu dagsins ljós, níu unglingamet og eitt aldursflokkamet.
Átta sundmenn tryggðu sér lágmörk á HM25 sem fram fer í Búdapest 10. – 15 desember og 16 tryggðu sér þátttökurétt á NM sem fram fer í Vejle 1. – 3 desember.
Í morgun setti sveit SH Íslandsmet í 4x50m skriðsundi þegar þau bættu 3 ára gamalt met sitt þegar þeir syntu á 1:35,27. Sveitina skipuðu þau Símon Elías Statkevicius, Vala Dís Cicero, Birnir Freyr Hálfdánarsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir.
Nú í kvöld voru sett tvö Íslandsmet í boðsundum. Þær Vala Dís Cicero, Auguste Balciunaite, Nadja Djurovic, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir bættu fimm ára gamalt Íslandsmet sitt í 4x 100m fjórsundi og karlasveit SH kom svo sá og sigraði á nýju Íslandsmeti einnig í 4x 100m fjórsund. Sveitina skipuðu þeir Bergur Fáfnir Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarsson, Símon Elías Statkevicius.
Vala Dís Cicero setti um helgina þrjú unglingamet en það síðasta kom í kvöld en það var í 100m skriðsundi þegar hún synti á 54,43 og bætti þar með 11 ára gamalt unglingamet Eyglóar Ósk Gústafsdóttur. Auguste Balciunaite setti aldursflokkamet í 50m bringusundi þegar hún synti á 33,37.
Eva Margrét Falsdóttir varð sexfaldur Íslandsmeistari í einstaklingsgreinum um helgina en hún tók einnig þátt í boðsundi með kvennasveit ÍRB þar sem þær sigruðu í 4x50m fjórsundi, Eva fór því heim með 7 gull eftir helgina.
Bestu afrek mótsins hlutu þau Snorri Dagur Einarsson og Vala Dís Cicero, en Snorri hlaut 821 Fina stig fyrir 100m bringusund og Vala Dís hlaut 804 stig fyrir 200m skriðsund.
Í lok móts var síðan tilkynnt um þau sem höfðu tryggt sér inn á HM25 og NM en bæði mótin fara fram í desember.
Þá er virkilega góð helgi að baki með frábærum árangri sundfólksins en SSÍ hefur ekki sent svona stórt lið á HM25 síðan 2016. Íslands og unglingametin sem sett voru um helgina hafa staðið mörg hver mjög lengi og eitt unglingametið hafði staðið í 26 ár. Það má með sanni segja að framtíðin sé björt á sundfólkinu á Íslandi.
HM25 hópurinn
Nafn |
Félag |
Birnir Freyr Hálfdánarson |
SH |
Einar Margeir Ágústsson |
ÍA |
Guðmundur Leo Ragnsson |
ÍRB |
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir |
SH |
Símon Elías Statkevicius |
SH |
Snorri Dagur Einarsson |
SH |
Snæfríður Sól Jórunnardóttir |
Aalborg |
Vala Dís Cicero |
SH |
NM Hópurinn
Nafn |
Félag |
Aron Bjarki Pétursson |
SH |
Ásdís Steindórsdóttir |
Breiðablik |
Bergur Fáfnir Bjarnason |
SH |
Daði Björnsson |
SH |
Denas Kazulis |
ÍRB |
Eva Margrét Falsdóttir |
ÍRB |
Fannar Snævar Hauksson |
ÍRB |
Freyja Birkisdóttir |
Breiðablik |
Hólmar Grétarsson |
SH |
Katja Lilja Andriysdóttir |
SH |
Magnús Víðir Jónsson |
SH |
Nadja Djurovic |
SH |
Sólveig Freyja Hákonardóttir |
Breiðablik |
Veigar Hrafn Sigþórsson |
SH |
Ylfa Lind Kristmannsdóttir |
Ármann |
Ýmir Chatenay Sölvason |
SH |