Mannvirkjaskýrsla SSÍ
Sundsamband Íslands (SSÍ) er málsvari sundíþróttahreyfingarinnar og hefur yfirumsjón með málefnum hennar á Íslandi. Eitt af höfuðmarkmiðum SSÍ er að tryggja nauðsynlega umgjörð fyrir framgang sundíþróttarinnar á lands- og alþjóðavísu. Stór áhrifaþáttur í árangri íþróttamanna er aðgangur að mannvirkjum sem bjóða upp á góða aðstöðu til æfinga og keppni. Sundlaugar hér á landi eru jafnan byggðar í þeim tilgangi að þjóna allskyns sundiðkun enda sund ein vinsælasta almenningsíþrótt Íslendinga. Í samkeppni við vinsæla almenningsíþrótt, skólasund, barnasund og ýmsa sundleikfimi hafa sundæfingar keppnisfólks sem og innlend og erlend sundmót átt undir högg að sækja.
Sem málsvari sundíþróttarinnar telur SSÍ mikilvægt að koma því sjónarmiði á framfæri að sundíþróttamannvirki séu byggð eða endurgerð með það markmið að styðja við sundkennslu, æfinga- og keppnisfólk. Í því samhengi má nefna mikilvægi þess að hægt sé að stunda kennslu og æfingar allt árið um kring innandyra, til að sporna gegn þeirri þróun sem hefur átt sér stað síðustu ár þar sem loka hefur þurft sundlaugum vegna heitavatnsskorts sem veldur því að sundkennsla og æfingar hafa verið felldar niður.
Í þeim tilgangi hefur SSÍ unnið að þarfagreiningu er varðar byggingu sundlaugamannvirkja hér á landi. Jakob Jóhann Sveinson, margfaldur Ólympíufari og verkfræðingur, stýrði vinnunni ásamt þeim Davíð Hildiberg Aðalsteinssyni Arkitekt og Eyleifi Jóhannessyni yfirmanni landsliðsmála hjá SSÍ. Að auki voru ýmsir aðilar úr sundhreyfingunni fengnir til að gefa álit sitt á einstökum þáttum á sérsviði viðkomandi eins og sundkennslu, dómgæslu á mótum, alþjóðlegra staðla fyrir keppnislaugar og margt fleira.
Markmið SSÍ með útgáfu og dreifingu á þessari yfirgripsmiklu skýrslu er að vekja athygli á öllum þeim mikilvægu þáttum sem horfa þarf til við byggingu sundlaugamannvirkja þannig að þau nýtist til sundkennslu og að byggja upp afreksmenn í sundi samhliða því að gagnast öðrum notendum.
SSÍ mun senda skýrsluna til allra sveitarfélaga, stofnana og framkvæmdaraðila með von um að hún komi að góðum notum sem uppflettirit þegar ákvarðanir um byggingu næstu sundlauga verða teknar.
Í þessu samhengi vill SSÍ koma því á framfæri að gríðarlega mikilvægt er að byggja sem fyrst innisundlaugar á Akranesi og Akureyri, en þar hefur sundkennsla ítrekað verið felld niður vegna veðurs auk þess sem skertar æfingar hafa ekki skilað sundfólkinu tilætluðum árangri.