Bæting á átta ára gömlu Íslandsmeti í 4x50m skriðsundi
HM25 byrjaði heldur betur vel hjá okkar fólki þegar þau hófu daginn á að synda boðsund, 4x50m skriðsund og setja nýtt Íslandsmet. Það voru þau Símon Elías Statkevicius, Guðmundur Leó Rafnsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir sem syntu á 1:34,12 og bættu tímann um tæpar tvær sekúndur og urðu í 19. sæti. Gamla metið var átta ára gamalt sett á HM25 árið 2016.
Einar Margeir Ágústson synti 200m bringusund á tímanum 2:09,97 og varð í 27. sæti þegar hann bætti tíma sinn síðan á ÍM25 í nóvember en þá synti hann á 2:10,52.
Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100m flugsund á 53,41 og varð í 51 sæti en þetta er annar besti tími hans í greininni en Íslandsmetið hans er 52,51 sem hann setti á ÍM25 í nóvember.
Flottur dagur í lauginni í dag hjá okkar fólki. Mótið heldur áfram á morgun þegar þau Jóhanna Elín og Símon Elías synda 50m skriðsund, Snorri Dagur syndir 50m bringusund og blönduð boðsundsveit tekur þátt í 4x100m skriðsundi.
Spennandi laugardagur framundan hjá okkar fólki í Búdapest.