Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundmaður og sundkona ársins 2024

19.12.2024 

Sundfólk ársins 2024

Til samræmis við samþykkt stjórnar SSÍ frá 18. desember 2024 og samþykktir SSÍ um val á sundfólki ársins tilkynnum við hér með að Snæfríður Sól Jórunnardóttir er sundkona ársins og Anton Sveinn McKee er sundmaður ársins.

Snæfríður syndir fyrir Álaborg í Danmörku og Anton Sveinn er úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.

 

Við val á sundfólki ársins er stuðst við eftirfarandi viðmið:

  1. FINA stig úr bestu grein sundfólksins eru vegin saman í báðum brautarlengdum.
  2. Árangri samkvæmt úrslitum á Íslandsmeistaramótum í báðum brautarlengdum.
  3. Árangri einstaklings (personal best) á IOC, FINA, LEN, GSSE, NSF.
  4. Íslandsmeti í samanburði við alþjóðleg met í báðum brautarlengdu.
  5. Staða sundmanns á heimslista í desember 2024 er vegin saman í báðum brautarlengdum.
  6. Þátttaka í landsliðsverkefnum.
  7. Árangur í landsliðsverkefnum.
  8. Ástundun sundfólksins.
  9. Íþróttamannsleg framkoma sundfólksins.

Við mat á árangri vegur árangur í langri braut 100% og í styttri braut 75%.

 

Sundkona ársins 2024 er                    Snæfríður Sól Jórunnardóttir

Snæfríður Sól er 24 ára gömul og syndir fyrir Álaborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2024, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.

Snæfríður Sól varð í 4. sæti í 200m skriðsundi á Evrópumeistaramótinu í Belgrad 17 – 23 júní 2024.

Snæfríður Sól tók þátt í Ólympíuleikunum í París í júlí og ágúst 2024. Þar synti hún 200m skriðsund og komst í undanúrslit en varð í fimmtánda sæti af öllum keppendum. Hún synti einnig 100m skriðsund og hafnaði í 19. sæti.

Í desember 2024 keppti Snæfríður Sól á Heimsmeistaramótinu í 25m laug í Búdapest þar sem hún varð í 13. sæti í 100m skriðsundi og tvíbætti Íslandsmetið í þeirri grein. Snæfríður keppti einnig í 200m skriðsundi og varð í 14. sæti í þeirri grein.

  Snæfríður Sól setti samtals 4 Íslandsmet á árinu. 

Frábær árangur hjá Snæfríði Sól á þessu ári.

Snæfríður Sól er í 7. sæti á lista yfir hröðustu sundkonur í 200m skriðsundi í Evrópu í 25m laug. Hún er í 9. sæti á sama lista í 100m skriðsundi í 25m laug. Snæfríður er í 15. sæti á Evrópulistanum í 200m skriðsundi í 50m laug.

Snæfríður synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir Sundfélagið Hamar, en flutti til Árósa þegar hún var 11 ára gömul. Hún keppti á Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018.  Snæfríður Sól keppti á Ólympíuleikunum í París 2024 en hún tók einnig þátt í Ólympíuleikum í Tokyo 2021.

Snæfríður er góð fyrirmynd jafnt sem sundkona og íþróttamaður utan laugar. Snæfríður Sól stundar nú Sálfræði nám í Háskólanum í Álaborg.

Snæfríður Sól er verðugur fulltrúi sundhreyfingarinnar og hún er vel að viðurkenningunni komin.

Við hjá SSÍ óskum Snæfríði innilega til hamingju með að vera valin Sundkona ársins 2024.

 

Sundmaður ársins 2024 er Anton Sveinn      McKee

Anton Sveinn McKee er sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar er sundmaður ársins, sjöunda árið í röð.

 

Anton Sveinn synti í úrslitum á Evrópumeistaramótinu í 50m í Belgrad í júni 2024

og varð í  4. sæti í  200m bringusundi.

 

Anton tók þátt í Ólympíuleikunum í París í júlí og ágúst 2024. Þar synti hann 200m bringusund og komst í undanúrslit.  Hann varð í fimmtánda sæti af öllum keppendum. Hann keppti einnig í 100m bringusundi og hafnaði í 25 sæti.

   Anton Sveinn er í 6. sæti á Evrópulistanum í 200m bringusundi í 50m laug og í 20. sæti á heimslistanum í sömu grein.

Anton er fluttur heim eftir langa dvöl erlendis. Anton er hættur að æfa og keppa í sundi eftir langan og farsælan feril. Hann fór á ferna Ólympíuleika, vann silfur á EM og komst í úrslit á HM.

Anton Sveinn er góð fyrirmynd jafnt sem sundmaður og íþróttamaður utan laugar. Hann hefur sýnt góða ástundun og mikla þrautseigju á ferlinum.

Anton hefur verið eljusamur/duglegur við að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og upprennandi sundmanna á undanförnum misserum.

Anton er afar vel að tilnefningunni kominn og við hjá SSÍ óskum Antoni Sveini til hamingju með að vera valinn Sundmaður ársins 2024.

 

Myndir með frétt

Til baka