Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dómaranámskeið á vorönn 5

05.02.2025

Næstu dómaranámskeið á vegum dómaranefndar SSÍ verða haldið sem hér segir:

12. febrúar 2025 kl. 18:00 í Pálsstofu, Laugardalslaug
19. mars 2025 kl. 18:00 í Ásvallalaug, Hafnarfirði
23. apríl 2025 kl. 18:00 í Pálsstofu, Laugardalslaug í Reykjavík

Skráning á dómaranámskeið sendist á domaranefnd@iceswim.is  með upplýsingum um nafn, kennitölu, síma og hvaða sundfélagi/deild viðkomandi er tengdur.

Til að verða almennur sunddómari þarf sunddómaranemi frá félagi á höfuðborgarsvæðinu og/eða af Suðurnesjum að safna a.m.k. .55 punktum á einu ári samkvæmt stigakerfi SSÍ. Af þessum 55 punktum þurfa a.m.k. 25 punktar að ávinnast á mótum SSÍ.

Dómaranemi frá félögum annars staðar á landinu/utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að safna a.m.k. 55 punktum á þremur árum samkvæmt sama kerfi.

Stigakerfi dómaranefndar SSÍ:

Sunddómarar safna punktum fyrir störf sem dómarar á sundmótum.

SSÍ mót og alþjóðleg mót 5 punktar fyrir hvern mótshluta,
Opin mót 3 punktar fyrir hvern mótshluta,
Héraðsmót 3 punktar fyrir hvern mótshluta,
Innanfélagsmót 3 punktar fyrir hvern mótshluta.


Til baka