Íslands- og unglingameistaramótið í sundi fer fram um helgina í Laugardalslaug, en mótið er samvinnuverkefni SSÍ og Íþróttasambands Fatlaðra (ÍF).
Íslands- og unglingameistaramótið í sundi fer fram um helgina í Laugardalslaug, en mótið er samvinnuverkefni SSÍ og Íþróttasambands Fatlaðra (ÍF).
Allt fremsta sundfólk landsins er skráð til keppni, þar á meðal Snæfríður Sól Jórunnardóttir ein besta skriðsundskona í Evrópu. Snæfríður hefur náð lágmörkum á Heimsmeistaramótið í 50m laug sem haldið verður í Singpore í sumar. Einar Margeir Ágústsson hefur einnig tryggt sér þátttökurétt á HM50 í sumar en hann mun keppa í 50, 100 og 200m bringusundi um helgina. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Símon Elías Stakevicius, sem tóku þátt í Bergen Festival í Noregi um síðustu helgi, verða einnig í sviðsljósinu, en þau eru bæði mjög nálægt HM50 lágmörkum.
Af öðrum keppendum sem verða í Laugardalslaug má nefna þá Snorra Dag Einarsson,Birni Frey Hálfdánarson og Guðmund Leó Rafnsson. Þeir þrír hafa nú þegar náð lágmörkum á Evrópumeistaramótið fyrir tuttugu og þriggja ára og yngri sem fram fer í Slóvakíu í sumar. Þá verða þau Vala Dís Cicero og Hólmar Grétarsson, sem hafa náð inn á Evrópumeistaramót unglinga í sumar, jafnframt í eldlínunni um helgina.
Þetta er síðasta tækifærið sem sundfólkið fær til að ná lágmörkum inn á alþjóðleg mót sumarsins, eins og Heimsmeistaramótið í 50m laug, Evrópumeistaramót unglinga og Norðurlandameistaramót æskunnar og einnig á Smáþjóðaleikana sem fram fara í Andorra í lok maí.
Einnig er Íslands- og unglingameistaramótið kjörið tækifæri fyrir sundfólk til að synda sig inn í landsliðshópa SSÍ þar sem afreksstarfið og hæfileikamótun til framtíðar fer fram.
Það verður spennandi keppni í Laugarsdalslaug alla helgina !
Mótið hefst með undanrásum í fyrramálið kl 09:00 og úrslit hefjast kl 16:30.
Úrslitin verða í beinni útsendingu á RÚV2 laugardag og sunnudag kl 16:30
Einnig verður hægt að horfa á streymi hér: https://www.sund.live/IM50