Eitt Íslandsmet í dag á ÍM50
Annar úrslitahluti Íslandsmeistaramótsins í 50m laug (ÍM50) fór fram með glæsibrag í dag.
Karlasveit Sundfélags Hafnarfjarðar (SH) sló Íslandsmet í 4x100 metra skriðsundi þegar þeir syntu á tímanum 3:26,14 mín. og bættu þar með sjö ára gamalt met um fimm sekúndur. Sveitina skipuðu Birnir Freyr Hálfdánarson, Veigar Hrafn Sigþórsson, Símon Elías Statkevicius og Ýmir Chatenay Sölvason.
Í 50 m baksundi karla sigraði Guðmundur Leó Rafnsson á tímanum 26,75 sek. eftir harða keppni við Fannar Snævar Haukson sem varð annar á 26,88 sek. Þetta var annar Íslandsmeistaratitill Guðmundar á mótinu en hann bætti svo við þriðja gullinu þegar hann sigraði 100 m skriðsund á 51,99 sek. eftir hörkukeppni við Ými Chatenay Sölvason sem kom í mark á 52,03 sek. og varð í öðru sæti.
Í 400 m fjórsundi kvenna sigraði Eva Margrét Falsdóttir með yfirburðum á tímanum 5:02,63 mín. og hlaut þar með sinn annan Íslandsmeistaratitil en hún hafði áður unnið 200 m bringusund.
Andri Már Kristjánsson sigraði í 1500 m skriðsundi karla á tímanum 16:30,59 mín. sem jafnframt er átta sekúndna bæting hjá honum.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir sigraði í 200 m skriðsundi á tímanum 2:00,95 mín. og fór þar með aftur undir lágmark fyrir HM50 í greininni.
Adam Leó Tómasson vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 200 m fjórsundi með tíma upp á 2:11,71 mín.
Ylfa Lind Kristmannsdóttir tryggði sér sinn annan Íslandsmeistaratitil þegar hún sigraði 100 m baksund á 1:04,92 mín.
Í 50 m bringusundi karla sigraði Snorri Dagur Einarsson á 27,79 sek., aðeins 0,33 sekúndum frá Íslandsmeti Antons Sveins McKee. Þetta var annar titill Snorra sem hafði áður sigrað í 100 m bringusundi.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir tryggði sér sigur í 50 m flugsundi þegar hún synti á 27,31 sek. en hún sigraði einnig í 50 m skriðsundi í gær.
Í 100 m bringusundi kvenna stóð Birgitta Ingólfsdóttir uppi sem sigurvegari með tímann 1:10,47 mín. og Hólmar Grétarsson sigraði 200 m flugsund karla á 2:05,41 mín.
Katja Lilja Andryisdóttir kom fyrst í mark í 800 m skriðsundi kvenna á tímanum 9:20,77 mín.
Að lokum sigraði kvennasveit SH í 4x100 m skriðsundi á tímanum 3:54,26 mín. Í sveitinni voru þær Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Vala Dís Cicero, Nadja Djurovic og Birgitta Ingólfsdóttir.
Síðasti dagur mótsins hefst í fyrramálið kl. 9:00 og síðasti úrslitahlutinn hefst kl. 16.30.